a boundary value of ‘2008-08-30T23:59:59.999’ for a datetime partition function will get rounded up to ‘2008-08-31T00:00:00.000’ and result in data for midnight (‘2008-08-31T00:00:00’) getting inserted into the left partition instead of the right.
Kálfstindar
7. júlí, 2008 · 1 ummæli
Við Ed gengum á Kálfstinda í gærkvöldi, fórum af stað úr bænum um átta og komum heim um tvö í nótt.
→ 1 CommentFlokkar: Uncategorized
Ryksuga er ROKK
9. nóvember, 2007 · Rita ummæli
Við Jökull Máni fórum á pönk/dauðarokktónleika í kvöld, þetta var hávært en Jökull Máni entist alveg þrjú lög sem var lengra en ég bjóst við.
Pabbi vinar Jökuls Mána er meðlimur í ægilegu pönkbandi og við fórum að sjá þá spila, ég skutlaði strákunum en pönkarinn kom seinna, hann varð að klára að ryksuga fyrst.
→ Leave a CommentFlokkar: Uncategorized
Kýpur
3. september, 2007 · Rita ummæli
Kýpurbúar munu taka upp evruna um áramótin og frá laugardeginum 1. sept varð skylda að merkja allar vörur bæði í Evrum og Kýpurpundum. Í búð sem við Bjarni villtumst inn í á Sunnudaginn var skilti á veggnum “Allar vörur sem ekki eru verðmerktar í Evrum eru ekki til sölu” póstkortin sem ég hélt á voru ekki verðmerkt í evrum en ég gat keypt þau samt.
→ Leave a CommentFlokkar: Uncategorized
I’m going home
30. júlí, 2007 · Rita ummæli
“On the day I went away
Goodbye
Was all I had to say
Now I
I want to come again and stay
Oh my
Smile, and that will mean I may
‘Cause I’ve seen blue skies
Through the tears in my eyes
And I realize I’m going home
I’m going home”
Ég flýg frá Ísrael þann 1. ágúst og flýg alfarinn heim til Íslands 2. ágúst.
Ég verð áfram í sömu vinnu, bara á öðrum stað og flandra frá Íslandi héðan í frá.
→ Leave a CommentFlokkar: Uncategorized
Tel Aviv
30. júlí, 2007 · Rita ummæli
Öryggi er tekið alvarlega hjá El Al. Mjög alvarlega. Check in er afgirt svæði á Schiphol þar sem Hollenskir herstrákar, gráir fyrir járnum ganga um og fólki er hleypt inn í hollum og tekið í létta yfirheyrslu.
“Hvað ætlar þú að gera í Ísrael?”
“Pakkaðir þú sjálfur í töskuna þína?”
“Hefur þú fylgst með töskunni þinni síðan þú pakkaðir niður?”
“Hefur þú verið beðinn fyrir gjöf til einhverra í Ísrael?”
“Þekkir þú einhverja í Ísrael? Hvað heita þau?”
Hann er kurteis, rennir hratt í gegnum spurningalistann en er með allt á hreinu, vel þjálfaður öfugt á við Hollendingana sem taka af manni vatn og sjampó í hliðinu en geta aldrei svarað af hverju.
Íslenska vegabréfið mitt vekur greinilega athygli ég er líka stoppaður við hliðið og látinn bíða eftir öðrum ísraelskum öryggisverði sem rennir aftur í gegnum sama spurningarlista.
Ég er búinn að koma mér fyrir í flugvélinni þegar öryggisvörður númer eitt birtist og fer að tala við konuna í sætinu fyrir framan mig.
“Er eitthvað rafmagnstæki í töskunni þinni sem gæti gefið frá sér hljóð?”
Konan hikar.
“Eitthvað sem gæti titrað?” spyr hann rólegur, en horfir beint í andlitið á henni.
“Ég er með rafmagnstannbursta í töskunni, hann gæti hafa farið í gang.” stynur hún á endanum upp.
“Í hvorri töskunni?”
“Þeirri rauðu.”
“Segjum það gott” og svo er hann farinn aftur.
Flugið er áfallalaust, nema hvað mp3 spilarinn minn varð að steini. Ég sit og les The God Delution eftir Richard Dawkins, maðurinn í sætisröðinni við hliðina, hefur litla bænahúfu á höfðinu og er að lesa einhverjar trúarlegar bækur. Hann rennir hornauga á mig. Sem betur fer var Harry Potter uppseldur, honum hefði kannski líkað enn verr við hann.
Ég bý mér svo til meiri vandræði á Ben Gurion, ég á að vera fyrirfram samþykktur en bið eftirlitið að stimpla ekki vegabréfið mitt. Ég gæti þurft að fara aftur til Kuwait eða þá til Saudi og þar eru stimplar frá Ísrael ekki vinsælir. Þetta kallar á nokkrar léttar yfirheyrslur frá 4 landamæravörðum í röð.
“Hvað ertu að gera í Ísrael?”
“Fyrir hverja vinnur þú?”
“Hvar kemur þú til með að búa?”
“Þekkir þú einhverja í Ísrael, hvað heita þeir?”
Mér bregður mest þegar ég er spurður hver sé að bolnum mínum, ” Yukio Mishima, japanskur rithöfundur” svara ég örlítið hissa. “Hvaða stjórnmálaskoðanir hefur hann?” “Hann var Japanskur þjóðernissinni?”
Kurteisu en ákveðnu landamæraverðirnir rétta mér vegabréfið óstimplað og bjóða mig velkominn til Ísrael. Næst mæti ég í bol með mynd af Isaac Bashevis Singer.
P.s. Leigubílsjórinn snuðaði mig ekki !
→ Leave a CommentFlokkar: Uncategorized
Stokkhólmur
23. mars, 2007 · Rita ummæli
Loksins eftir árs þvæling um miðausturlönd og austurevrópu fæ ég að fara á framandi slóðir. STOKKHÓLMUR. Það ótrúlegasta er að ég fékk í kvöld besta libanska mat sem ég hef fengið utan Dubai, í sænskri úrabúð. Kem heim á laugardag
→ Leave a CommentFlokkar: Uncategorized
Gáta
15. mars, 2007 · Rita ummæli
Hvað er það fyrsta sem tölvudeildin gerir eftir 5 klukkustunda rafmangsleysi?
Fer í kapphlaup að kaffivélinni.
→ Leave a CommentFlokkar: Uncategorized
Tyrkneskar byggingar
15. mars, 2007 · Rita ummæli
Á lóðinni við hliðina er verið að byggja stóra verslunarmiðstöð og á girðingunni hanga skilti sem bjóða tilvonandi viðskiptavini velkomna. Ég rek augun í að það er engin mynd af tilvonandi verslunarmiðstöð og spyr Orlando hvernig standi á þessu. Það stendur ekki á svari. “Það er ekki hægt. Það eru Tyrkir að byggja þetta og þar með er ómögulegt að vita hvernig niðurstaðan verður”
→ Leave a CommentFlokkar: Uncategorized







